Romans 9

1Ég tala sannleika í Kristi, ég lýg ekki. Samviska mín vitnar það með mér, upplýst af heilögum anda, 2að ég hef hryggð mikla og sífellda kvöl í hjarta mínu. 3Ég gæti óskað, að mér væri sjálfum útskúfað frá Kristi, ef það yrði til heilla fyrir bræður mína og ættmenn, 4Ísraelsmenn. Þeir fengu sonarréttinn, dýrðina, sáttmálana, löggjöfina, helgihaldið og fyrirheitin. 5Þeim tilheyra og feðurnir, og af þeim er Kristur kominn sem maður, hann sem er yfir öllu, Guð, blessaður um aldir. Amen. 6Það er ekki svo sem Guðs orð hafi brugðist. Því að ekki eru allir þeir Ísraelsmenn, sem af Ísrael eru komnir. 7Ekki eru heldur allir börn Abrahams, þótt þeir séu niðjar hans, heldur: ,,Afkomendur Ísaks munu taldir verða niðjar þínir.`` 8Það merkir: Ekki eru líkamlegir afkomendur hans Guðs börn, heldur teljast fyrirheitsbörnin sannir niðjar. 9Því að þetta orð er fyrirheit: ,,Í þetta mund mun ég aftur koma, og þá skal Sara hafa son alið.`` 10Og ekki nóg með það. Því var líka svo farið með Rebekku. Hún var þunguð að tveim sveinum af eins manns völdum, Ísaks föður vors. 11Nú, til þess að það stæði stöðugt, að ákvörðun Guðs um útvalningu væri óháð verkunum og öll komin undir vilja þess, er kallar, 12þá var henni sagt, áður en sveinarnir voru fæddir og áður en þeir höfðu aðhafst gott eða illt: ,,Hinn eldri skal þjóna hinum yngri.`` 13Eins og ritað er: ,,Jakob elskaði ég, en Esaú hataði ég.`` 14Hvað eigum vér þá að segja? Er Guð óréttvís? Fjarri fer því. 15Því hann segir við Móse: ,,Ég mun miskunna þeim, sem ég vil miskunna, og líkna þeim, sem ég vil líkna.`` 16Það er því ekki komið undir vilja mannsins né áreynslu, heldur Guði, sem miskunnar. 17Því er í Ritningunni sagt við Faraó: ,,Einmitt til þess hóf ég þig, að ég fengi sýnt mátt minn á þér og nafn mitt yrði boðað um alla jörðina.`` 18Svo miskunnar hann þá þeim, sem hann vill, en forherðir þann, sem hann vill. 19Þú munt nú vilja segja við mig: ,,Hvað er hann þá að ásaka oss framar? Hver fær staðið gegn vilja hans?`` 20Hver ert þú, maður, að þú skulir deila á Guð? Hvort mundi smíðisgripurinn segja við smiðinn: ,,Hví gjörðir þú mig svona?`` 21Eða hefur ekki leirkerasmiðurinn leirinn á valdi sínu, svo að hann megi gjöra úr sama deiginu ker til sæmdar og annað til vansæmdar? 22En ef nú Guð, sem vildi sýna reiði sína og auglýsa mátt sinn, hefur með miklu langlyndi umborið ker reiðinnar, sem búin eru til glötunar, 23og ef hann hefur gjört það til þess að auglýsa ríkdóm dýrðar sinnar á kerum miskunnarinnar, sem hann hafði fyrirfram búið til dýrðar? 24Slík ker erum vér, sem hann hefur kallað, ekki aðeins úr flokki Gyðinga, heldur og úr flokki heiðingja. 25Eins og hann líka segir hjá Hósea: Lýð, sem ekki var minn, mun ég kalla minn, og þá elskaða, sem ekki var elskuð, 26og á þeim stað, þar sem við þá var sagt: þér eruð ekki minn lýður, þar munu þeir verða kallaðir synir Guðs lifanda. 27En Jesaja hrópar yfir Ísrael: ,,Þótt tala Ísraels sona væri eins og sandur sjávarins, þá skulu leifar einar frelsaðar verða. 28Drottinn mun gjöra upp reikning sinn á jörðunni, binda enda á hann og ljúka við hann í skyndi,`` 29og eins hefur Jesaja sagt: ,,Ef Drottinn hersveitanna hefði ekki látið oss eftir niðja, værum vér orðnir eins og Sódóma, vér værum líkir Gómorru.`` 30Hvað eigum vér þá að segja? Heiðingjarnir, sem ekki sóttust eftir réttlæti, hafa öðlast réttlæti, _ réttlæti, sem er af trú. 31En Ísrael, sem vildi halda lögmál er veitt gæti réttlæti, náði því ekki. 32Hvers vegna? Af því að þeir ætluðu sér að réttlætast með verkum, ekki af trú. Þeir hnutu um ásteytingarsteininn, 33eins og ritað er: Sjá ég set í Síon ásteytingarstein og hrösunarhellu. Sérhver, sem á hann trúir, mun ekki verða til skammar.
Copyright information for Icelandic